Undna hnéđ.
Hæ alle sammen.
Vaknaði á föstudagsmorguninn kl 04:00 "einfættur" eða þannig. Vinstra hnéð var alveg helaumt og greinilegt að ég hafði orðið fyrir miklu hnjaski um nóttina. Ekki rekur mig minni til þess að hafa verið í sóknarlínunni í fótbolta eða neitt tengt íþróttum þótt ég sé mikill unnandi íþrótta, þá aðallega í sjónvarpi.
Mér datt nú bara í hug sá mikli indíánahöfðingi Wounded knee eða eins og sá sami höfðingi var nefndur í einni Lukku-Láka bókinni, Undna hnéð![]()
Svo ég henti í tvö kryddbrauð sem bökuðust síðan.
En föstudagurinn leið eins og hver annar mánudagur og ég bókstaflega var draghaltur en þegar ég var að setjast inn í bílinn var eins og maður væri að fara að troða sér í skókassa undan flókainniskóm númer36. En það tókst alltaf að komast inn í bílinn en ekki var betra að komast út úr honum aftur, það var eins og skókassinn hefði hlaupið niður í númer 26.
Um kvöldið er ég fór til náða og háttaði var eins og vinstra lærið væri fullt af vökva og leist mér ekki á blikuna.
En það er allt á réttri leið hnéð.
Bless, Trausti
Kofahreinsun og heyskapur.
Ahhhhhhhhhhhhhhhhh RITVERKURINN Ahhhhhhhhhh, kvalræðiskveðjur, TT
Segiđabara
Annars ekkert nýtt, samt betra en ónýtt.
Hvað finnst okkur um handrukkun?
Sá einhver Kompás síðast? Það ætti að gefa, ekki selja, veiðileyfi á svona helv.... djö....... bölvaða ribbalda sem berja fólk, já það ætti bara að berja þá, ha?
Bless, TT
Ike mćtti og tćtti
Síðan var það hjá Jóa granna að grillið þar var eitthvað að sýna á sér fararsnið en ábreiðan þar var orðin losaraleg og tók ég hana af, einnig voru þungir blómapottar farnir á hliðina og húsgögn farin að hreyfast, nei, það var enginn í andaglasi. Svo brotnaði tré Skúla granna og lagðist ofan á bílinn hans og skemmdist hann eitthvað við það, þ.e.a.s. bíllinn, ekki Skúli.
Ahhhhhhhhhh , RITVERKURINN meira seinna bless, Trausti
Lóđarí
dagurinn hjá mér fór nú aðallega í lóðarí þ.e. slá lóðina, reyta arfa og rabarbara, Linda Rún var rakari og síðan að koma því svo á viðeigandi stað á gámasvæðinu. Ég er kannski rakur en Haddi er rakari en það er önnur saga.
Barbara Ara bar Ara araba bara rabarbara= Kiddi Fúsa hélt á Gvendi indverja bara rabarbara
en það er líka önnur saga.
Ætlaði að mála eitthvað í dag en var með málverk frá síðasta máli.....
Hér hefur verrið mannskaðaveður í allan dag hitinn vel yfir meðallagi þannig að maður klæddi sig bara eftir því, bumban, stuttbuxur og jesúskórnir.
Segi ekki meir.
Bless í bili, Trausti.
"Konulausi" kotkallinn kominn keikur.
Hef verið með svo mikinn ritverk að ég hef verið svo lítið hérna....
Nú er ég konulaus í kotinu því að hún Jóa mín er farin til Danmerkur í frekara nám sem er barararararasta snilld hjá henni en það er ósköp tómlegt hérna heima á kvöldin.
Kvöldin eru kaldlynd útá nesi
kafaldsbylur hylur hæð og lægð o.s.frv.
Ahhhhhhh, þarna er ritverkurinn að segja til sín aftur svo ég segi bara
bæbæ for now Trausti
Busi í USA.
Bara kátur!
Fótboltasjúklingar
Pétur er annálaður Man Utd. fan og væri örugglega fínn í "húligans" hóp. Hooligans=fótboltabullur.Ðis is sikk on hæ level. En sandskoti er leiðinlegt að vera í aðalhliðinu, betra væri að vera í tölvuleysinu í einangruninni í Vesturhliðinu. Þar er reyndar bara opið á daginn (06:00- 19:00) og hefur verið síðan á föstudaginn og annað og betra, það eru ekki sömu kallar á vakt þar alla daga, heldur er bara skipt, þessi þennan dag annar næsta dag og enn annar þarnæsta dag. Og ég var þarna í 2 vikur samfellt. Skil ekki enn hvað ég hafði gert af mér til að fá þannig refsingu:) Sennilega er skýringin sú að ég get borið þyngri byrðar en allir þessir guttar til samans, pottþétt. bæbæ for now, Trausti, með hausverk:)
Sandkassakrakkar Rey.
sama þó að þeir steli sandi frá hverjum öðrum og mér er alveg sama þó að sé meiri sandur í þessu horninu eða hinu í sandkassanum. Sumir fá gefins sand frá Bjarna í miðju kassans, aðrir fara í fýlu því að Bjössi komst yfir sandinn hans Villa sem vissi ekkert hvað var að gerast. Villa var hent út úr sandkassanum og í malarhrúguna og ég veit ekki hvað og hvað. Senda ætti alla þessa fja..... sandkassakalla til Sahara og láta þá hafa nokkrar arkir af sandpappír og segja við þá að ef þeir villtust þá væri gott að hafa landakort af Sahara, sem sagt sandpappírinn!!!!!!!! Jæja þá, gott í bili:) bæbæ for now. Trausti